mánudagur, maí 26, 2008

örstutt síðan síðast

*Ég fór í gönguferð í dag á svæðinu í kringum Buttermilk Falls (eða Áfafossa eins og það myndi líklega útleggjast á íslensku) með Ísraelunum og Svíunum - gengum í rúma fjóra tíma og nutum góða veðursins. Núna rétt áðan var svo að ljúka útskriftarveislu sambýlingsins, reyndar er hún hvorki búin að skrifa lokaritgerðina né verja hana en þar sem er bara ein útskriftarathöfn á ári tók hún þátt í henni og stefnir að að ljúka restinni í sumar.

*Gunnhildur kom í heimsókn um daginn og ég hitti hana fyrst í New York þar sem við dvöldum í fjóra daga og svo kom hún með mér til Íþöku. Heimsóknin lenti saman við lokadaga annarinnar þannig að hún kom með mér á ráðstefnu (þar sem ég hélt erindi), í lokapartí málvísindadeildarinnar (þar sem leiðinlegar kennslubækur og glósur voru brenndar af fólki sem er komið nálægt útskrift) og á spurningakeppnikvöld.

*Daginn áður en Gunnhildur kom fór ég í vínsmökkunarferð, en í kringum vötnin hérna er mikið af vínekrum (Finger Lakes Wineries) - sum víni sem við smökkuðum voru frábær á meðan önnur hefðu sómt sér vel sem rottueitur. Með mér í för var fólkið úr spurningaliðinu og sem betur fer drekkur ein þeirra ekki vín og bauðst til að vera bílstjóri okkar hinna. Við lögðum snemma af stað og hófum leikinn með morgunmat á "diner" (og þar af leiðir að maturinn samanstóð af pönnukökum, beikoni og sýrópi) - síðan rúntuðum við á milli staða í hátt í sjö tíma og náðum að heimsækja svona 10-15 staði í mjög misjöfnu ásigkomulagi. Sá eftirminnilegasti leit út eins og Suðurríkjakrá og þar voru áberandi skilti um að glös væru ekki innifalin í vínsmökkunarverðinu. Síðar það sama kvöld var svo margarítulest í stofunni heima hjá mér, einhverra hluta vegna var það kallað kaffilest þegar nokkrir fóru saman að kaupa kaffi og til að fagna kennslulokum, útskriftum og fleiru var lestarnafnið yfirfært á áfengi. Í þessari tilteknu lest komst ég að tvennu - að ég hef aldrei smakkað margarítur áður og að ég hef ekki misst af miklu, því þær eru frekar vondar.

*Föstu punktar hverrar viku á þessari önn hafa (fyrir utan tíma) verið að mæta í forníslenska leshringinn, fara á spurningakeppnikvöld á kránni (þar sem ég er orðinn fastagestur), fara og hitta þýskuhringinn og svo náttúrulega að horfa á Njósnadeildina með sambýlingnum og breskum nágranna okkar (aðalaðdráttarafl þáttanna á þær virðist vera að finna einhverja starfstétt sem hefur það skítara en doktorsnemar og njóta þess að sjá aðra þjást). Svo hafa verið spilakvöld, stöku partí og kaffihúsaferðir og meira að segja kirkjuferðir, því Calanit langaði svo mikið til að vera viðstödd alvörumessu með orgelspili og öllu sem því tilheyrir - bekkjarfélagi hennar mælti með söfnuði sem reyndist hittast í íþróttahúsi og öll tónlist leikin á nútímahljóðfæri (messan var ágæt en svolítið súrrealískt að sitja undir körfuboltakörfum á meðan).

*Lokavikur annarinnar voru uppfullar af önnum en það reddaðist allt eins og vanalega, svo nú hef ég rúman mánuð til að einbeita mér að því að klára ákveðna ritgerð, sem og að pakka og finna mér vinnu fyrir haustið.

*Fólk er farið að tínast í sumarfrí hingað og þangað og sumt þeirra mun ég aldrei hitta aftur (þrátt fyrir loforð um annað), sem er sorglegt, svona rétt þegar ég var farin að kynnast fólki almennilega. Mér finnst samt skrýtnast hversu mörgu fólki ég hef kynnst á þessu tæpa ári og hvað allir eru alltaf vingjarnlegir og góðir og hvaðð það verður skrýtið að hitta það ekki í haust (eða í raun nokkurn tíma). Reyndar var mér um daginn boðið í brúðkaup hérna þann 9/9 '09 - og ég lofaði að mæta þó svo að ég sé ekki viss um að samband brúðhjónanna endist það lengi.

Loksins er svo búið að mála húsið að utan - allt í allt hefur það tekið fjóra mánuði og það er ekki gaman að vakna eldsnemma á morgnana við bölvandi málara, sérstaklega ekki þegar þeir hafa farið í dramakeppnir og hótað að reka hver annan eða hætta. En þó svo að húsið sé orðið þokkalegt að utan er það alltaf jafnógeðslegt að innan, sama hversu vel er tekið til/þrifið.

*Ég hef fylgst með kreppuástandinu heima og dáist eiginlega að dáleiðsluhæfileikum Davíðs - fyrst sagði hann okkur að það væri góðæri og það varð góðæri, síðan sagði hann okkur að það væri kreppa og þá varð kreppa. Þrátt fyrir að hafa lesið um það fékk ég áfall í gær þegar ég sá hvað verðtryggðu húsnæðislánin mín hafa hækkað skart - svo mjög að bara hækkun síðasta mánaðar jafngildir hátt í tveggja mánaða meðalkaupi fyrir mig. Ég vona bara að þeir sem eiga sök á þessari svakalegu verðbólgu séu stoltir af sjálfum sér og njóti þess virkilega að hafa "stolið" öllum þessum peningum af mér.

*Ég hef áhyggjur af því að fá ekki vinnu í haust - bæði út af þessu krepputali sem og því að ég sé nánast engin störf auglýst sem henta mér og ætla ekki að skrá mig hjá ráðningarskrifstofum fyrr en ég kem heim. Annars hlakka ég svolítið til að koma heim og hverfa aftur í fjöldann og kunnugleikann (þó svo að ég verði sjálfsagt farin að blóta Íslandi í sand og ösku á mettíma) en kvíði hins vegar því að aðlagast aftur sem og minna félagslífi (því vinkonur mínar virðast margar vera komnar annaðhvort í barneignir og fjölskyldumyndanir eða ætla að flytja langt í burtu frá mér (og já ég veit hvað þetta hljómar síngirnislega og ég get fátt sagt eftir að hafa látið mig hverfa í eitt ár).


*Hmmm, já og svo er fólk eindregið hvatt til að svara bréfum frá mér (eða láta mig vita ef ég hef ekki svarað) - er farin að fá á tilfinninguna að það sé eitthvert rosasamsæri í gangi og enginn vilji tala við mig ;p

3 ummæli:

Name withdrawn sagði...

Maður sér kreppuna helst á verðlaginu og svo heyrir maður af því að það sé ekki mikið að gerast á fasteignamarkaðinum né á bílasölum. En Geir vildi meina í fréttunum í dag að við værum allavega að komast yfir verðbólguskotið.

Við sjáum hversu sannspár hann reynist.

En ég hlakka til að fá þig heim þó svo að ég sé svo að fara flytja til Langtíburistan aka Akureyrar.

Kolfinna sagði...

Ég hlakka til að hitta þig og Akureyri verður óralengra frá mér en Holtsgata.

Kolfinna sagði...

Og ég vona að Geir reynist sannspár þó svo að ég efist um það. Mig langar hins vegar til vita af hverju verðbólgan rauk upp úr öllu valdi og sérstaklega af hverju bankarnir græddu.